Alþjóðleg rannsókn á reynslu sjúklinga

Mynd af frétt Alþjóðleg rannsókn á reynslu sjúklinga
13.07.2022

Um eitt þúsund skjólstæðingar heilsugæslunnar hafa fengið boð um þátttöku í alþjóðlegri rannsókn á útkomu og reynslu sjúklinga heilsugæslustöðva. Boðin koma sem smáskilaboð í síma og í tölvupósti.

Rannsóknin hefur þann tilgang að skoða bæði aðbúnað heilsugæslustöðva og þá umönnun og meðferð sem fólk fær á stöðvunum. Rannsóknin er unnin af Heilbrigðisvísindastofnun heilbrigðissviðs Háskóla Íslands. Hún er gerð að tilstuðlan Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) og nær til 22 landa. 

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hvetur þá sem fá boð um að taka þátt í rannsókninni til að taka þátt og svara spurningalista sem það fær. Þar er meðal annars spurt um líkamlega og andlega heilsu, lífsgæði, lyf, einkenni, lífsstíl, aðgengi að þjónustu og samskipti við heilsugæsluna.  

 

Dæmi um SMS: