Bangsar læknaðir á þremur heilsugæslum

Mynd af frétt Bangsar læknaðir á þremur heilsugæslum
26.04.2022
Öllum börnum ásamt foreldrum eða forráðamönnum er boðið að koma með slasaða eða veika bangsa á þrjár heilsugæslustöðvar á bangsaspítala á laugardaginn. Þar munu læknanemar taka á móti þeim og veita böngsunum aðhlynningu.

Bangsaspítalinn verður opinn á Heilsugæslunni Efstaleiti, Heilsugæslunni Höfða og Heilsugæslunni Sólvangi laugardaginn 30. apríl milli klukkan 10 og 16.

Tilgangurinn með bangsaspítalanum er tvíþættur. Annars vegar að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og hins vegar að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn

Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn eigin bangsa. Gott er að ræða fyrir fram við barnið um það hvernig bangsinn er veikur (hvort hann sé til dæmis með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót). Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda.

Það er Lýðheilsufélag læknanema sem stendur fyrir bangsaspítalanum.