Heilsugæsla og Læknavakt taka við meginhluta COVID-19-þjónustu af Landspítala

Mynd af frétt Heilsugæsla og Læknavakt taka við meginhluta COVID-19-þjónustu af Landspítala
16.02.2022

Heilsugæsla og Læknavakt munu taka við meginhluta af þjónustu og eftirliti með COVID-19 veikum einstaklingum af Landspítala frá og með 16. febrúar. Þessi yfirfærsla er í samræmi við þróun heimsfaraldurs Covid-19 hér á Íslandi þar sem sífellt færri greinast alvarlega veikir. Á þessum tímapunkti verður starfsemi COVID- 19 - göngudeildar og fjarþjónustu símavers Landspítala dregin saman.

Mikið veikum einstaklingum og fólki í sérstakri áhættu verður áfram vísað til mats og meðferðar á Landspítala. Fjarþjónusta Landspítala mun áfram meta svör fólks í Heilsuveru og hvort að  ástæða er til vöktunar símleiðis eða skoðunar í Birkiborg hjá Landspítala í Fossvogi. Spítalinn mun sömuleiðis hafa eftirlit með fólki á Farsóttarhótelum eins og þörf krefur. Starfsfólk heilsugæslu og Læknavaktar mun sem fyrr hafa hnökralausan aðgang að COVID-19-sérfræðingum Landspítala. Heilsugæslan mun áfram greina smit með PCR-prófi eða hraðprófi.

Heilsuvera verður miðlæg upplýsingalind fyrir smitaða einstaklinga. Þar fær fólk upplýsingar um sýkingu, leiðbeiningar og boð um útfyllingu spurningalista á svokölluðu heilsufarsblaði ef einkenna verður vart. Gert er ráð fyrir að endurnýjun lyfseðla fari að mestu fram í heilsugæslu. Sjúklingar geta haft samband á heilsuvera.is annað hvort við netspjall á ytri vefnum eða sent erindi á „mínar síður“. Einnig má hafa samband beint við heilsugæslustöð, Læknavakt, sími 1700 eða  hringja í 513-6400, Upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.