COVID-19 Ný reglugerð

Mynd af frétt COVID-19 Ný reglugerð
11.02.2022

Við vekjum athygli á nýrri reglugerð.

Í dag verður birt reglugerð sem felur í sér afnám sóttkvíar vegna smita innanlands. Þessar breytingar taka gildi um leið og reglugerðin birtist í Stjórnartíðindum í dag.

Þau sem þegar eru í sóttkví þurfa því ekki að mæta í sýnatöku til að losna og á það einnig við um þau sem áttu að fara í sýnatöku í dag.

Þau sem hafa verið útsett fyrir smiti verður ekki lengur skylt að sæta smitgát þótt hvatt sé til hennar og þar með fellur jafnframt brott skylda til sýnatöku í lok smitgátar.

Reglur um einangrun verða óbreyttar.  

Reglur um þau sem koma um landamæri Íslands breytast ekki.  

Sjá nánar á vef stjórnarráðsins