Opið til kl 19 í bólusetningu á fimmtudaginn

Mynd af frétt  Opið til kl 19 í bólusetningu á fimmtudaginn
07.09.2021

Fimmtudaginn 9. september verður boðið upp á bólusetningar til kl. 19:00 á Suðurlandsbraut 34.

Öll óbólusett og hálfbólusett sem eru með íslenska kennitölu eru velkomin í bólusetningu.
Við vonum að lengri opnunartími geri þeim sem eftir eru auðveldara að mæta.

Við hvetjum sérstaklega fólk sem fékk Janssen að koma og fá örvunarskammt
Einnig er velkomið fólk sem er 60 ára og eldra ef 6 mánuðir eru liðnir frá seinni skammti.

Við minnum á að venjulega er bólusett frá kl. 10 til 15 alla virka daga.
Sjá nánar : Bólusetningar í viku 35 og 36