Námskeið um brjóstagjöf

Mynd af frétt Námskeið um brjóstagjöf
26.05.2021

Ung- og smábarnavernd ÞÍH hélt námskeið um brjóstagjöf fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður í ung- og smábarnavernd þann 4. maí síðastliðinn.

Fræðslunni var streymt og var þátttaka góð. 

Leiðbeinendur á námskeiðinu voru:

  • Hulda Sigurlína Þórðardóttir ljósmóðir, hjúkrunarfræðingur og IBCLC brjóstagjafaráðgjafi
  • Ingibjörg Eiríksdóttir ljósmóðir, hjúkrunarfræðingur og IBCLC brjóstagjafaráðgjafi

Hægt er að nálgast upptöku af námskeiðinu á læstri síðu ÞÍH. Notendanafn og lykilorð má nálgast hjá throunarmidstod@heilsugaeslan.is. Stefnt er að því að halda áfram að taka upp fræðslu og hafa aðgengilega á þessari læstu síðu. 

Einnig viljum við benda á að Norræna brjóstagjafaráðstefnan verður haldin á Hótel Hilton í Reykjavík 23. - 24. september 2021. Áhugasamir eru hvattir til að taka þennan tíma frá.