Dagskrá bólusetninga - Vika 19

Mynd af frétt Dagskrá bólusetninga - Vika 19
07.05.2021

Í viku 19 er er búið að skipuleggja þessar bólusetningar í Laugardalshöll:

  • Þriðjudaginn 11. maí verður Pfizer bólusetning. Þá er seinni bólusetning og bólusetning kvenna sem eru yngri en 55 ára og eru í áhættuhópum. SMS boð verða send til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er 9-15.

Ekki eru staðfestir fleiri bólusetningardagar í þessari viku. Við bendum á bólusetningardagatalið varðandi vísbendingar um framhaldið 

Fyrirkomulag á bólusetningastað 

Allir eru beðnir um að mæta með skilríki og við minnum á grímuskyldu. Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða.  Allir þurfa að bíða í um 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin.

Spurningar  

Ef þú ert með spurningar varðandi fyrirkomulag bendum við á Algengar spurningar um fyrirkomulag bólusetninga

Ef þú hefur spurningar varðandi bólusetningar og heilsufar bendum við á netspjallið á heilsuvera.is.    

Við bendum líka á ítarlegar upplýsingar varðandi bólusetningar, bóluefnin og aukaverkanir á covid.is/bolusetningar  

Afþakka bólusetningar 

Ef þú vilt hafna bólusetningu alfarið óháð bóluefni, sendir þú nafn þitt og kennitölu á bolusetning@heilsugaeslan.is. Þar er engum spurningum svarað.

Hafi fólk bráðaofnæmi við stungulyfjum, eða af óþekktum toga, er ekki ráðlegt að bólusetja það.