Forgangsröðun í bólusetningu - uppfært

Mynd af frétt Forgangsröðun í bólusetningu - uppfært
15.01.2021

Núna er lögð áhersla á að bólusetja aldraða og við reynum að ná til þeirra á marga vegu. 

Bólusetningu á hjúkrunarheimilum er nánast lokið.

Byrjað er að bólusetja á sambýlum, dagdvölum og þá skjólstæðinga heimahjúkrunar sem ekki eiga heimangengt.

Eldri borgarar eru næstir í forgangsröð. Við byrjum á þeim sem eru elstir og farið niður aldursröðina eftir því sem bóluefni berst.
  

Gert er ráð fyrir að í lok mars verði búið að bólusetja alla eldri en 70 ára, en í þessum hópum eru um 40.000 manns.

Í apríl og maí, ef áætlanir um komu bóluefnis ganga eftir, er stefnt að bólusetningu næstu forgangshópa.  Einstaklingar eldri en 60 ára, yngra fólk með ákveðnar sjúkdómsgreiningar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn.  

Þessir einstaklingar munu fá rafrænt boð í bólusetningu. Ef það fer framhjá viðkomandi verður haft samband eftir öðrum leiðum. Það verður líka auglýst hvaða aldurshóp er verið að bólusetja hverju sinni.

Bólusetningar á vegum heilsugæslunnar gegn COVID-19 eru samkvæmt forgangsröð. Röðin er samkvæmt tilmælum sóttvarnalæknis og staðfest með reglugerð. Heilsugæslustöðvar breyta ekki forgangsröð.

Forgangshópar vegna sjúkdóma þeirra sem eru yngri en 60 ára byggjast á greiningum í sjúkraskrárkerfum heilsugæslu og landspítala. Eftir á að raða einstaklingum innan sjúkdómaflokka. 

Hvenær hver hópur fær bólusetningu ræðst m.a. af því hve mikið og hratt bóluefni berst til landsins.

Það mun koma að öllum og enginn verður skilinn útundan.

(Frétt uppfærð 25. janúar 2021)