Embætti landlæknis og Lyfjastofnun fylgjast með alþjóðlegri umfjöllun um brjóstapúða af ákveðinni gerð vegna tengsla þeirra við sjaldgæft eitilfrumukrabbamein (BIA-ALCL; breast implant-associated anaplastic large cell lymphoma). Púðarnir sem sjónir hafa einkum beinst að eru með hrjúfu yfirborði og framleiddir af lyfjafyrirtækinu Allergan. Hætt var að selja þessa púða í Evrópu í lok síðasta árs, líkt og fram kom í tilkynningu frá Lyfjastofnun í desember síðastliðnum.
Umræddir púðar voru notaðir hér á landi á árunum 2007–2015 en innflutningi þeirra var hætt um mitt ár 2015. Talið er að á þessu árabili hafi um 470 konur hérlendis fengið þessa tegund brjóstapúða ígrædda. Eitilfrumukrabbamein tengt brjóstapúðum er afar sjaldgæft og engin dæmi þess hérlendis.
Ekki er talin þörf á að grípa til sérstakra aðgerða vegna þeirra kvenna sem eru með þessa brjóstapúða. Um þetta eru alþjóðlegar stofnanir og sérfræðingar sammála í ljósi þess að meinið er sjaldgæft og einkenni þess afgerandi. Íslensk heilbrigðisyfirvöld munu áfram fylgjast vel með faglegri umfjöllun heilbrigðisyfirvalda og eftirlitsaðila í Evrópu og víðar um þessi mál.
Vegna þessa máls hafa Embætti landlæknis og Lyfjastofnun tekið saman spurningar og svör með upplýsingum og fræðslu um eitilfrumukrabbamein tengt brjóstapúðum (BIA-ALCL). Þær upplýsingar er að finna á vef Embættis landlæknis.