Hugað að heilsu á leið út í heim

Mynd af frétt Hugað að heilsu á leið út í heim
29.03.2019

Nú eru margir að horfa til framandi landa með áætlun um að leggja land undir fót. Að upplifa framandi menningu, skrýtna siði, stórbrotið landslag, smakka og prófa nýjan mat er allt hluti af skemmtilegri upplifun ferðalangsins. En skemmtileg ferðalög geta snúist upp í andhverfu sína ef heilsan er ekki í lagi.

Á www.heilsuvera.is er að finna mörg heilsutengd ráð fyrir ferðalanginn og eins bjóða heilsugæslustöðvar upp á ferðamannaráðgjöf.
Gott er að hafa samband um tveimur mánuðum fyrir áætlaða ferð svo mögulegt sé að framkvæma nauðsynlegar bólusetningar.

Hér koma nokkur heilsutengd atriði sem gott er að huga að:

Er ég með bólusetningarnar í lagi?

Almennt má segja að þeir sem ferðast til Norðurlandanna, Vestur og Suður-Evrópu, Kanada, Bandaríkjanna og Japan þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af alvarlegum sjúkdómum.
En það skiptir þó máli hvað ferðamaðurinn er að gera í þessum löndum. Þeir sem ætla á vit náttúrunnar gætu þurft að huga að bólusetningu. Þeir sem ferðast til landa utan þessara svæða þurfa að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk tímanlega, það er tveimur til þremur mánuðum áður en lagt er upp í ferð til að ganga úr skugga um hvort ástæða er til bólusetninga.

Á heilsugæslustöðvum má fá ráð og leiðbeiningar um mikilvægar bólusetningar sem og á Göngudeild sóttvarna sem er til húsa í Þönglabakka 1 í Mjódd í Reykjavík.

Borðið ekki grænmetið hrátt

Það eru næstum helmings líkur á því að fólk fái niðurgang ef ferðinni er heitið til landa í Austur-Evrópu, Asíu, Suður-Ameríku og Afríku. Besta forvörnin er handþvottur og huga vel að mataræðinu. Hafa í huga að borða ekki hrátt grænmeti eða ávexti með hýðinu. Öruggast er að afhýða sjálfur ávexti og grænmeti.
Almennt ætti ekki að borða hráan mat eða endurhitaðan. Öruggastur er nýsoðinn matur. Ekki ætti að borða ís eða nota ísmola.

Við niðurgang skal gæta þess að drekka nóg af vökva sem inniheldur sykur og sölt, lítið í senn. Einnig getur verið gott að hafa með sér í ferðina lyf sem fást í lausasölu í apóteki, til dæmis Imodium sem geta dregið úr niðurgangi. Ef niðurgangurinn er svæsinn og blóðugur og honum fylgir hiti þá skal leita læknisaðstoðar og fá sýklalyf.

Smyrsl fæla skordýrin

Mikilvægt er að nota skordýrafælandi smyrsl eða úða til að minnka líkur á skordýrabitum. Bera þarf vel á alla hluta líkamans sem ekki er hulinn fötum. Mörg skordýr bíta í gegnum föt og því er ágætt að úða líka á fötin. Efnið diethyltoluamide (DEET) er útbreiddasta, ódýrasta og virkasta skordýrafælan sem óhætt er að nota á húð. Gæta þarf að styrkleika efnisins, 30% er lágmark til að verjast skordýrum sem geta borið sjúkdóma en óþarfi er að fara yfir 50% styrk. Á svæðum þar sem malaría er landlæg er mikilvægt að verjast biti eftir að skyggja tekur. Moskítónet meðhöndlað með skordýraeitri ber að nota á nóttunni.

Sé fólk bitið getur bit verið mjög hvimleitt og hægt er að minnka óþægindin talsvert með því að taka ofnæmislyf eins og Loritin og bera vægan steraáburð á bitin. Þessi lyf er gott að hafa með sér og þau fást án lyfseðils í lyfjabúðum.

Sólin er það fyrirbæri sem gerir okkur mögulegt að lifa hér á jörðinni. Hún yljar okkur, sendir okkur orku, birtu og þegar hún skín á húðina framleiðir húðin D-vítamín sem er okkur nauðsynlegt. En sólin getur líka brennt. Húð hefur náttúrulega vörn gegn geislum sólarinnar sem hún byggir upp smám saman þegar við erum úti í sólinni. Húðin dökknar og það veldur því að við þolum sólina lengur.

Aðferðir til að verjast skaðlegum geislum sólarinnar:

  • Besta leiðin er að klæðast ljósum, léttum fötum á heitum sólardögum og gleyma ekki sólhatti ef menn eru langtímum saman úti í meðal áhættu eða meiri. Fólk sem býr sunnar á hnettinum hefur tileinkað sér að vera að mestu innandyra eða í skugga yfir bjartasta tíma dagsins til að forðast sólina þegar geislun hennar er mest yfir hádaginn. Á ferðum til sólríkra landa er ágætt að taka upp siði heimamanna í þessum efnum og leita í skuggann á heitasta tíma dagsins.   
  • Vera á hreyfingu í sólinni.Verst er liggja kyrr og láta sólina skína stöðugt á sama hluta líkamans.
  • Nota sólgleraugu sem eru CE merkt með breiðum örmum.
  • Nota sólkrem eftir þörfum. Gott er að hafa sólkremin með sér í ferðalagið.
  •  Þeir sem ætla að ferðast til sólríkra landa með ung börn þurfa að gæta þess sérstaklega vel að verja þau fyrir sólinni.

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, og Margrét Héðinsdóttir, vefstjóri hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu