Ráðstafanir á Íslandi gegn mislingum

Mynd af frétt Ráðstafanir á Íslandi gegn mislingum
06.03.2019

Ef einstaklingar telja sig eða börn sín geta verið veik af mislingum, á að hringja í síma 1700 eða á heilsugæslustöð. Ekki  koma beint á heilsugæslustöðvar eða sjúkrahús.

Til hvaða ráðstafana er verið grípa á Íslandi gegn mislingum?

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum þá hafa 4 einstaklingar greinst með mislinga á Íslandi. Tveir fullorðnir einstaklingar hafa greinst og tvö börn og heilsast öllum vel. Allir einstaklingarnir óbólusettir eftir því sem best er vitað og smituðust allir í flugi Iceland Air Connect þann 15.2.2019. Þetta sýnir að mislingar eru mjög smitandi og smitast auðveldlega á milli einstaklinga við litla snertingu.

Sóttvarnalæknir í samvinnu við heilsugæsluna, Landspítalann, Læknavaktina og fleiri aðila hefur unnið að eftirfarandi sóttvarnaráðstöfunum sem miða að því að hindra frekari dreifingu sýkingarinnar:

  1. Sóttkví. Allir einstaklingar sem eru óbólusettir og komist hafa í snertingu við mislingasmit er beðið um halda sig heima frá degi 6 til dags 21 eftir smit. Á þessum tíma geta veikindi komið fram og eru einstaklingar þá smitandi og verða reyndar smitandi um einum sólahring áður en veikindin byrja. Ekki þarf að setja bólusetta einstaklinga í sóttkví.

  2. Bólusetning gegn mislingum. Ef einstaklingur sem verður fyrir smiti er bólusettur innan 72 klst frá smiti þá eru góðar líkur á því að einstaklingurinn veikist ekki. 
    Mælt er með bólusetningu óbólusettra fjölskyldumeðlima þeirra sem komast í snertingu við mislingasmit því það mun koma í veg fyrir áframhaldandi útbreiðslu.  
    Bólusetningu má gefa börnum allt niður í 6 mánaða aldur en árangurinn er ekki alveg ótvíræður á aldrinum 6-12 mánaða og þarf því að bólusetja þessi börn aftur við 18 mánaða aldur.

  3. Meðhöndlun veikra. Ef einstaklingar telja sig eða börn sín geta verið veik af mislingum þá er fólk beðið um að koma ekki beint á heilsugæslustöðvar eða sjúkrahús heldur hafa fyrst samband símleiðis í s. 1700 eða við sína heilsugæslustöð. Þar fær fólk ráðleggingar og mun sjá um að senda lækni heim til viðkomandi ef ástæða þykir til, til að greina og staðfesta sýkinguna. Einnig verður hægt að senda viðkomandi á sjúkrahús til meðferðar samkvæmt fyrirfram ákveðnum leiðbeiningum sem gefnar verða.

  4. Upplýsingar um mislinga og mislingasmit. Til að fá upplýsingar um mislinga og mislingasmit má hringja í síma 1700 og einnig til heilsugæslustöðva.

Sóttvarnalæknir telur litlar líkur á útbreiddum faraldri hér á landi ef öllum ofangreindum varúðarráðstöfunum verður fylgt. Að auki er rétt að benda á að almenn þátttaka í bólusetningum hér á landi er um 90-95% sem á að duga til að koma í veg fyrir útbreiddan faraldur.