Frá 1. janúar 2018 er kostnaður vegna tannlækninga barna, sem skráð eru með heimilistannlækni, greiddur að fullu af Sjúkratryggingum Íslands, að frátöldu 2500 kr. komugjaldi sem greitt er einu sinni á 12 mánaða fresti.
Vakin er athygli á því að börn yngri en þriggja ára eiga nú einnig rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum.
Foreldrar/ forráðamenn bera ábyrgð á tímapöntun hjá tannlækni og skráningunni í gegnum vefsíðu SÍ Réttindagátt – Mínar síður. Aðgangur að gáttinni er tryggður með íslykli eða rafrænum skilríkjum. Tannlæknar geta einnig klárað skráninguna þegar mætt er í bókaðan tíma.
Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að panta tíma í fyrstu tannskoðun þegar barnið er tveggja ára.
Tannlækningum er einungis sinnt á einkastofum tannlækna. Lista með nöfnum starfandi heimilistannlækna má nálgast á vef Sjúkratrygginga Íslands.
Gjaldfrjálsar tannlækningar ná yfir eftirlit, forvarnir, flúormeðferð, skorufyllur, tannfyllingar, rótfyllingar og annað sem telst til nauðsynlegra tannlækninga.
Sjá nánar á vef Sjúkratrygginga Íslands – www.sjukra.is