Árni Scheving Thorsteinsson heimilislæknir hættir störfum

Mynd af frétt Árni Scheving Thorsteinsson heimilislæknir hættir störfum
28.08.2017
Árni Scheving Thorsteinsson heimilislæknir hættir störfum á Heilsugæslunni Seltjarnarnesi og Vesturbæ þann 1. september og fer á Heilsugæsluna Höfða.

Skjólstæðingar Árna verða áfram skráðir á Heilsugæsluna Seltjarnarnesi og Vesturbæ og velkomnir þangað. 

Við þökkum Árna fyrir samstarfið og óskum honum velfarnaðar í framtíðinni.

Nýr heimilislæknir, Ásthildur Erlingsdóttir, hefur verið ráðin frá 1. september 2017.