Ráðning fagstjóra lækninga við Heilsugæsluna Mjódd

Mynd af frétt Ráðning fagstjóra lækninga við Heilsugæsluna Mjódd
02.11.2016

Jón Aðalsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í heimilislækningum hefur verið ráðinn fagstjóri lækninga við Heilsugæsluna Mjódd, frá 1. nóvember 2016.  

Jón Aðalsteinn hlaut almennt lækningaleyfi á Íslandi í maí 1978 og sérfræðileyfi í heimilislækningum í maí 1983.  Hann hefur starfað sem heimilislæknir hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá árinu 2003 við Heilsugæsluna Mjódd og sl. ár sinnt starfi fagstjóra lækninga á starfsstöðinni. 

Við bjóðum Jón Aðalstein velkominn til áframhaldandi starfa innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.