Fræðadagar heilsugæslunnar verða 3. og 4. nóvember 2016 á Grand hóteli.
Fræðadagar eru árlegur viðburður hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og þetta er áttunda árið sem þeir eru haldnir.
Þema daganna er lífsstíll og hvað heilsugæslan getur gert, skoðað frá ýmsum hliðum.
Þróunarsvið heilsugæslunnar hefur umsjón með Fræðadögum en skipulagsstjóri Fræðadaganna 2016 er Helga Sævarsdóttir hjúkrunarfræðingur Heilsugæslunni Árbæ.
Á Fræðadagasíðunni er allt um dagskrána og þátttökuskráning.
Þegar nær dregur bætast þar við útdrættir erinda.