Árleg bólusetning gegn inflúensu 2016

Mynd af frétt Árleg bólusetning gegn inflúensu 2016
16.09.2016

Árleg bólusetning gegn inflúensu hefst á heilsugæslustöðvum mánudaginn 26. september 2016. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag eru á forsíðu hverrar heilsugæslustöðvar. 

Fyrirkomulag

Fyrirkomulag bólusetningarinnar getur verið mismunandi milli heilsugæslustöðva. Nánari upplýsingar eru á síðu heilsugæslustöðvarinnar þinnar.

Hvað er inflúensa, hver eru einkennin og hvenær kemur hún?

Inflúensa er veirusýking sem einkennist af háum hita, þurrum hósta, höfuðverk, beinverkjum, oft með hálssærindum og nefrennsli. Einkennin koma snögglega. Árviss faraldur af völdum inflúensu A og oftast einnig af völdum inflúensu B hefst oft í desember eða janúar, en gera verður ráð fyrir að upphaf inflúensufaraldurs geti verið frá október til mars. Yfirleitt tekur 2–3 mánuði fyrir faraldur að ganga yfir.

Um bóluefnið

Bóluefnið inniheldur tvo A-stofna og einn B-stofn. Annar A-stofninn er A/California/7/2009 (H1N1)pdm09 og er þar um að ræða svonefnda svínainflúensu-veiru frá 2009. Hinn A-stofninn er A/Hong Kong/4801/2014 (H3N2). B-stofninn er B/Brisbane/60/2008.

Er inflúensan hættuleg?

Hætta á alvarlegum fylgikvillum inflúensu er mest meðal aldraðra og fólks með bælt ónæmiskerfi, en inflúensan leiðir á hverju ári til dauðsfalla meðal eldri borgara. 

Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?

  • Öllum sem orðnir eru 60 ára
  • Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Heilbrigðisstarfsmönnum sem daglega annast fólk með aukna áhættu, sbr. ofantalið.
  • Þunguðum konum

Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða þó komugjald samkvæmt reglugerð nr. 1144 / 2015

Hversu mikil vörn er í bólusetningu?

Búast má við að bólusetning geti veitt a.m.k. 70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem hann verður vægari hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Sóttvarnalæknir leggur áherslu á að sem flestir verði bólusettir, ekki síst þeir sem tilheyra forgangshópum.

Ef þú þarft að fá ráðleggingar, hafðu þá samband við heilsugæslustöðina þína.

Bent skal á að vel má láta bólusetja sig þó svo að inflúensufaraldur sé hafinn því einungis tekur um 1-2 vikur að mynda verndandi mótefni eftir bólusetningu.

Jafnframt er minnt á að þeir sem á þurfa að halda geta í leiðinni fengið bólusetningu við lungnabólgu (pneumókokkasýkingu).  Gjald fyrir lungnabólgubólusetningu er samkvæmt reglugerð.

Frekari upplýsingar um inflúensu og  hverjum Sóttvarnalæknir ráðleggur að láti bólusetja sig við lungnabólgu. hverjum má finna á vef  Embættis landlæknis, www.landlaeknir.is.