Ráðning fagstjóra hjúkrunar við Heilsugæsluna Glæsibæ

Mynd af frétt Ráðning fagstjóra hjúkrunar við Heilsugæsluna Glæsibæ
28.06.2016

Jóhanna Eiríksdóttir hefur verið ráðin fagstjóri hjúkrunar í Glæsibæ frá og með 1. september 2016. 

Jóhanna útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1984, lauk diplómagráðu í heilsugæslu og hjúkrun barna og unglinga frá Háskóla Íslands árið 1995 og BSc í hjúkrunarfræði frá sama skóla árið 1998.

Jóhanna hefur starfað sem yfirhjúkrunarfræðingur við Heilsugæsluna Miðbæ frá 2010 en starfaði áður sem almennur hjúkrunarfræðingur við Heilsugæsluna Árbæ frá 1991. 

Við bjóðum Jóhönnu velkomna til nýrra starfa innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.