Sjaldan sætindi og í litlu magni

Mynd af frétt Sjaldan sætindi og í litlu magni
30.01.2015

Embætti landlæknis stendur fyrir árlegri tannverndarviku 2. til 7. febrúar 2015 í samstarfi við Tannlæknafélag Íslands.

Tannverndarvikan þetta árið er helguð því að kynna landsmönnum mikilvægi þess að draga úr sykurneyslu undir kjörorðinu: Sjaldan sætindi og í litlu magni.

Að þessu tilefni kynnir Embætti landlæknis nýjan vef, www.sykurmagn.is. Á vefnum er að finna myndrænar upplýsingar um viðbættan sykur í ýmsum matvælum, einkum sætindum og sykruðum gos- og svaladrykkjum.

Með hjálp vefsins geta foreldrar hjálpað börnum sínum að læra að velja æskilegar vörur með minna magni af viðbættum sykri en aðrar sambærilegar vörur. Þá mun vefurinn einnig nýtast í kennslu.

Annar liður í tilefni Tannverndarviku er útgáfa myndbandsins Sykur á borðum. Í því er litið inn hjá fjölskyldu sem ætlar að eiga notalega stund við sjónvarpið. Myndbandið verður aðgengilegt á vef Embættis landlæknis á síðunni Tannvernd.