Birtar hafa verið upplýsingar um þau lyf sem læknar þeirra 15 heilsugæslustöðva sem tilheyra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, auk lækna annarra starfsstöðva HH og lækna Heilsugæslunnar í Salahverfi, ávísuðu árið 2013. Áður hafa verið birt gögn fyrir árin 2007-2012.
Heildarkostnaðurinn var 3,66 miljarðar króna, dróst saman um 93,8 milljónir króna frá fyrra ári og kostnaður við einstaka lyfjaflokka breyttist lítillega, lækkaði frekar en hækkaði í flestum tilfellum. Krónan hækkaði örlítið á tímabilinu gagnvart erlendum gjaldmiðlum þannig að raunkostnaður var mjög svipaður og árið á undan.
Upplýsingarnar um lyfjaávísanirnar er að finna hér á vefnum.