Mentoranámskeiði á Siglufirði

Mynd af frétt Mentoranámskeiði á Siglufirði
19.05.2014

Félag íslenskra heimilislækna, í samvinnu við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og HÍ, stóð fyrir vel heppnuðu mentoranámskeiði á Siglufirði dagana 15. til 17. maí.
 
Siglufjörður skartaði sínu fegursta og var mikil ánægja með námskeiðið sem hefur verið haldið reglulega frá árinu 2003.
 
Á myndinni má sjá flesta sem sátu námskeiðið en þetta eru sérfræðingar í heimilislækningum alls staðar af á landinu.
 
Kennslunefnd FÍH sá um þetta námskeið en í þeirri nefnd sitja Alma Eir Svavarsdóttir kennslustjóri sérnáms, Arnar Þór Guðmundsson yfirlæknir á Selfossi, Jóhann Ág. Sigurðsson prófessor, Margrét Ólafía Tómasdóttir umsjónardeildarlæknir sérnáms og Valþór Stefánsson formaður kennslunefndar.

Mentor er sérfræðingur í heimilislækningum, kennari sem fylgist með framvindu náms hjá sérnámslækni og  hvetur til faglegrar þróunar og þroska. Mentor er með reglulega fundi með sérnámslækni og fer yfir mat sem er gert á sérnámslækni  t.d. við yfirferð á sjúkranótum, við myndbandsgátun og eftir frammistöðu á fyrirlestrum.