Samkvæmt ársreikningi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sem Ríkisendurskoðun hefur staðfest, varð 10,6 milljóna kr. afgangur af rekstri stofnunarinnar árið 2012. Jafngilti það um 0,2% af veltu stofnunarinnar á árinu.
Heildartekjur HH á árinu 2012 urðu 5.106 milljónir kr. Þar af námu fjárheimildir úr ríkissjóði 4.535 milljónum kr. og sértekjur urðu 571 milljón kr. Að frátöldum launa- og verðlagsbótum lækkuðu fjárheimildir stofnunarinnar af fjárlögum 2012 um 66 millj. kr. frá árinu áður vegna markmiða ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum.
Ýmsir útgjaldaliðir HH hækkuðu samt sem áður á milli áranna 2011 og 2012. Þannig hækkuðu launagreiðslur um 6,2%, rekstrarvörur um 8,4%, aðkeypt þjónusta um 4,7%, húsnæðiskostnaður um 8,4% og ferðir og fundir um 11,6%. Á móti var dregið verulega úr eignakaupum og sértekjur stofnunarinnar jukust um 6%.
Samkvæmt ársreikningnum varð 2012 því þriðja árið í röð sem rekstur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins varð innan fjárheimilda og rekstrarniðurstaða stofnunarinnar jákvæð.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins starfrækir 15 heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu, auk fjögurra starfsstöðva með sérhæfðari þjónustu.
Rekstur Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins innan fjárheimilda 2012
05.07.2013