Þann 1. janúar síðastliðin tók Katrín Fjeldsted við sem forseti CPME Evrópusamtaka lækna en hún mun gegna því embætti í 3 ár.
Katrín hefur setið í stjórn CPME í 7 ár fyrst sem einn af 4 varaforsetum og svo sem gjaldkeri síðastliðin 3 ár. Hún var kjörin forseti 5. maí 2012.
CPME stendur fyrir Comité Permanent des Medecins Européens eða Standing Committee of European Doctors. Þetta eru helstu samtök lækna í Evrópu og það eru læknafélög landanna sem mynda samtökin.
Katrín starfar í Heilsugæslunni Efstaleiti og hefur unnið hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá árinu1980.
Hún hefur áratuga reynslu af félagsstörfum, m.a. sem borgarfulltrúi og alþingismaður auk trúnaðarstarfa fyrir læknafélög.