Þitt er valið - Tannverndarvika 2011

Mynd af frétt Þitt er valið - Tannverndarvika 2011
31.01.2011

Fyrsta vikan í febrúar ár hvert er helguð tannvernd og í ár er áhersla lögð á glerungseyðingu og hvernig stemma megi stigu við henni.

 Ákveðið var að beina sjónunum fólks að innihaldi drykkjarvara og áhrifum þess á glerungseyðingu – ekki síst hjá börnum og ungmennum en unglingar drekka t.d. mjög mikið af gosdrykkjum. Samkvæmt könnun RÍN (2003-2004) drekka 9 ára börn að meðaltali tæplega 2,5 lítrar á viku af gosdrykkjum og sætum svaladrykkjum og 15 ára unglingar tæplega 4 lítrar á viku.

Af því tilefni hefur verið gefið út veggspjaldið Þitt er valið þar sem lýst er á myndrænan hátt innihaldi algengustu vatns-, ávaxta- og gosdrykkja á markaðnum og áhrifum innihaldsins á tannheilsu.

Upplýsingarnar á veggspjaldinu eru settar fram á myndrænan hátt þannig að sem flestir skilji þær, jafnvel þeir sem ekki kunna íslensku til fullnustu, sem og til að hjálpa fólki að muna hvað er í hverjum drykk þegar kemur að því að velja sér drykkjarvöru. Veggspjaldið er í A2 stærð.

Einnig hefur verið gefið út fræðslumyndband um umhirðu tanna barna, jafnt ungra sem þeirra eldri, og það talsett á ensku, rússnesku og pólsku, auk íslensku. Myndbandið er unnið í samstarfi Lýðheilsustöðvar, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis og starfandi barnatannlækna á Íslandi.

Í ung-og smábarnavernd eru foreldrar fræddir um mikilvægi réttrar munnhirðu.  

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Lýðheilsustöð vinna náið saman að tannverndarmálum og er Hólmfríður Guðmundsdóttir tannlæknir starfandi hjá Lýðheilsustöð og Þróunarstofu heilsugæslunnar.