Uppeldi sem virkar - Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeið 18. og 19. mars 2010

Mynd af frétt Uppeldi sem virkar - Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeið 18. og 19. mars 2010
15.01.2010

Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar
Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeið
18. og 19. mars 2010

Á Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeiðinu eru kynntar aðferðir og hugmyndafræði Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar og farið rækilega í skipulag, framkvæmd og innihald samnefndra foreldranámskeiða.

Rík áhersla er lögð á notkun jákvæðra aðferða í uppeldi, á gildi fyrirmynda, markvissa kennslu æskilegrar hegðunar og nauðsyn fyrirhyggju, skipulags og samkvæmni uppalenda. Á síðum Þroska- og hegðunarstöðvar eru nánari upplýsingar um foreldranámskeiðið og helstu áhersluþætti sem það byggir á. 

Á Leiðbeinendanámskeiðinu er einnig fjallað um uppeldi og uppeldisráðgjöf almennt og farið í hagnýtt efni sem miðar að því að auka færni þátttakenda í að veita árangursríka ráðgjöf um uppeldi bæði til foreldra og starfsfólks í uppeldisstörfum.

Námskeiðið er ætlað fagfólki sem sinnir uppeldisráðgjöf og/eða er í beinum tengslum við börn á ýmsum aldri. Þátttaka á námskeiðinu veitir réttindi til að verða leiðbeinandi á uppeldisnámskeiðum fyrir foreldra og að nota öll þar til gerð námskeiðsgögn.

Leiðbeinendanámskeiðið fyrir leikskóla er stutt viðbótarnámskeið fyrir þá sem vilja gerast leiðbeinendur á Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar fyrir leikskóla. Innihald þeirra námskeiða byggir á sama grunni og foreldranámskeiðin en efnið hefur verið lagað sérstaklega að þörfum og aðstæðum starfsfólks leikskóla. Þátttakendur þurfa áður að hafa setið Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeiðið. Nánar auglýst síðar.

Hagnýtar upplýsingar um námskeiðið

  • Þátttakendur: Námskeiðið stendur til boða fagfólki með menntun á uppeldis- eða heilbrigðissviði sem starfar við uppeldi barna og/eða við ráðgjöf og fræðslu um uppeldi til foreldra eða starfsfólks. Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 20.
  • Leiðbeinendanámskeið: Fimmtudaginn 18. mars 2010 kl. 10:00-16:00 og föstudaginn 19. mars 2010 kl. 8:30-14:30.
  • Staður: Þroska- og hegðunarstöð, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, Fundarsalur A.
  • Þátttökugjald: Námskeiðsgjald er 12.000 kr. fyrir starfsfólk heilsugæslu og 15.000 kr. fyrir annað fagfólk. Öll námskeiðs- og kennslugögn auk kaffiveitinga eru innifalin.
  • Skráning: Skráning er í afgreiðslu Þroska- og hegðunarstöð, í síma 585-1350 eða með tölvupósti fyrir 8. mars. 
  • Leiðbeinendur: Gyða Haraldsdóttir sálfræðingur og Lone Jensen uppeldisráðgjafi.

Nánari upplýsingar um námskeiðin má fá í síma 585-1350 eða hjá Gyðu Haraldsdóttur. 

Hönnun námskeiðanna Uppeldi sem virkar - Færni til framtíðar var liður í sérstöku átaksverkefni á Miðstöð heilsuverndar barna stutt af Áfengis- og vímuvarnaráði, Fjölskylduráði, Félagsmálaráði Kópavogs, Forvarnanefnd Reykjavíkur, Landlæknisembættinu,  Menntamálaráðuneytinu o.fl.
Hluti verkefnisins var þýðing og útgáfa bókarinnar: Uppeldisbókin - Að byggja upp færni til framtíðar sem námskeiðin byggja að miklu leyti á. Aðalhöfundur námskeiðanna er Dr. Gyða Haraldsdóttir sálfræðingur.