Móttaka fyrir fólk sem er of þungt (BMI >30) og/eða með sykursýki af tegund 2, hefur starfsemi sína í Heilsugæslu Mosfellsumdæmis 1. október 2009.
Móttakan, Lífsstílsráðgjöf, er samvinnuverkefni lækna og hjúkrunarfræðinga á stöðinni en er í umsjón Huldu Gestsdóttur hjúkrunarfræðings. Móttakan verður opin einu sinni í viku, eftir hádegi á fimmtudögum.
Í fyrsta viðtali fer fram upplýsingasöfnun og mælingar á hæð, þyngd, blóðþrýstingi, púls og blóðsykri. Líkamsþyngdarstuðull (BMI) er reiknaður út og skjólstæðingum leiðbeint um hvernig halda skuli matardagbók. Gert er ráð fyrir að fyrsti tíminn sé 40 mínútur á lengd.
Eftirfylgnitímar eru 20 mínútna langir einu sinni í mánuði að jafnaði og þá eru mælingarnar endurteknar og farið yfir matardagbókina.
Einstaklingsmiðuð fræðsla verður veitt í hverjum tíma í samvinnu við Samtök sykursjúkra og Lýðheilsustöð. Gert er ráð fyrir að skjólstæðingar verði í föstu eftirliti hjá sínum lækni á 3. mánaða fresti.
Starfsemi móttökunnar byggir á klínískum leiðbeiningum frá Landlæknisembættinu um sykursýki af tegund 2.