Bólusetning gegn inflúensu

Mynd af frétt Bólusetning gegn inflúensu
09.10.2008

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vill vekja athygli almennings á því að skipulögð bólusetning gegn inflúensu hefst á öllum heilsugæslustöðvunum mánudaginn 13. október 2008.

Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?

• Öllum sem orðnir eru 60 ára
• Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
• Starfsfólki heilbrigðisþjónustu og öðrum sem daglega annast fólk með aukna áhættu.

Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða komugjald samkvæmt reglugerð nr. 1265 / 2007. Í síðasttalda hópnum eru það þó einungis heilbrigðisstarfsmenn sem ekki greiða fyrir bóluefnið. Fyrirkomulag bólusetningar getur verið mismunandi milli heilsugæslustöðva.

Heilsugæslan Árbæ, Reykjavík  s: 585 7800
Heilsugæslan Efra-Breiðholti, Reykjavík s: 513 1550
Heilsugæslan Efstaleiti, Reykjavík s: 585 1800
Heilsugæslan Fjörður, Hafnarfirði s: 540 9400
Heilsugæslan Garðabæ   s: 520 1800
Heilsugæslan Glæsibæ, Reykjavík  s: 599 1300
Heilsugæslan Grafarvogi, Reykjavík s: 585 7600
Heilsugæslan Hamraborg, Kópavogi s: 594 0500
Heilsugæslan Hlíðum, Reykjavík  s: 585 2300
Heilsugæslan Hvammi, Kópavogi  s: 594 0400
Heilsugæslan Miðbæ, Reykjavík  s: 585 2600
Heilsugæslan Mjódd, Reykjavík  s: 513 1500
Heilsugæsla Mosfellsumdæmis  s: 510 0700
Heilsugæslan Seltjarnarnesi  s: 561 2070
Heilsugæslan Sólvangi, Hafnarfirði s: 550 2600
Heilsugæslan Lágmúla 4, Reykjavík s: 595 1300
Heilsugæslan Salahverfi, Kópavogi s: 590 3900

Búast má við að bólusetning geti veitt a.m.k. 70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem hann verður vægari hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Þeim sem leita vilja ráðgjafar er bent á sína heilsugæslustöð.

Fræðsluefni um inflúensu má finna á vef landlæknisembættisins, www.landlaeknir.is