Hættum að reykja!

Mynd af frétt Hættum að reykja!
15.03.2007

Þann 12. apríl hefst námskeið gegn reykingum á Lungna- og berklavarnadeild, Þönglabakka 1 í Mjóddinni. Um er að ræða stuðnings- og lyfjameðferð með hópfundum fjórum sinnum og síðan einstaklingsbundnu eftirliti í eitt ár.

Námskeiðsgjald er 10 000 kr og 15 000 kr fyrir hjón. Passar vel fyrir þá, sem ítrekað hafa reynt en ekki tekist að ná varanlegu reykbindindi.

Námskeiðið verður haldið á fimmtudögum  kl. 13.00 , dagana 12. apríl, 26. apríl, 3., og 10. maí 2007.

Tekið er á móti pöntunum í síma 585-1390 en einnig á lob@lob.hg.is.