Heilsueflandi námskeið fyrir konur

Njóttu þess að borða: Námskeið fyrir konur í yfirvigt

Uppbygging námskeiðs

Námskeiðið hefur sýnt góðan árangur hjá konum. Það er ætlað konum með líkamsþyngdarstuðul (BMI-stuðul) 30 kg/m² og yfir.

Heildræn nálgun sem byggir á hugrænni atferlismeðferð (HAM), þjálfun svengdarvitundar (AAT), hreyfingu, slökun og heilbrigðu mataræði.

Námskeiðið  stendur í 15 vikur, hóptímar eru 14 og einstaklingstímar þrír. Hóptímar eru að meðaltali 3-4 sinnum í mánuði í tvo tíma í senn og byggja á hópefli, fræðslu, fyrirlögn heimavinnu, gönguferðum, teygjum og slökun.

Árangursmat

Meðan á námskeiði stendur eru lagðir fyrir kvarðar  sem meta lífsgæði, lífsstíl og einkenni þunglyndis.  Hæð er mæld í upphafi og þyngd reglulega á námskeiðstíma.

Þátttakendur þurfa að:

  • Mæta í alla tíma
  • Vinna og skila heimaverkefnum
  • Boða forföll í tíma til leiðbeinenda

 Markmið námskeiðs

Aðstoða þátttakendur við að breyta lífsstíl til frambúðar með því að breyta hugarfari, matarvenjum og hreyfingu og draga þannig úr líkum á neikvæðum heilsufarsáhrifum sem offita getur valdið.

Dagskrá hóptíma

  •   1. tími:   Kynning meðferðarinnar
  •   2. tími    Markmiðasetning
  •   3. tími:    Hreyfing
  •   4. tími:    Heilbrigðar matarvenjur
  •   5. tími:    Ósjálfráðar hugsanir
  •   6. tími:    Ósjálfráðar hugsanir  II
  •   7. tími:    Borða meðvitað
  •   8. tími:    Áhrif umhverfis á mataræði
  •   9. tími:    Tilfinningalegt át
  • 10. tími:    Tegund matar
  • 11. tími:    Næring, innkaup og merkingar matvæla
  • 12. tími:    Þyngdartap
  • 13. tími:    Einkaþjálfarinn
  • 14. tími:    Samantekt og áherslupunktar

Um námskeiðið

Námskeiðið þróuðu Helga Lárusdóttir hjúkrunarfræðingur MPH og Helga Sævarsdóttir hjúkrunarfræðingur MPH

Leiðbeinendur eru Helga Sævarsdóttir og Rósíka Gestsdóttir hjúkrunarfræðingur 

  • Ekki er komin dagsetning á næsta námskeið
  • Upplýsingar í síma 513-5200 eða hjá Helgu Sævarsdóttur
  • Staður: Heilsugæslan Árbæ
  • Tímasetning hóptíma: kl. 16 -18 á miðvikudögum
  • Verð: 11.762 kr.

Skráning

Þeir sem áhuga hafa geta sent tölvupóst til að láta skrá sig á lista, (vinsamlegast gefið upp nafn, aldur og símanúmer í tölvupóstinum).

Czy treść była pomocna?

Tak

Rusl-vörn


Dlaczego nie?