Ljósmóðurfræði er 120 eininga, fræðilegt starfstengt nám á meistarastigi við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Nánari upplýsingar um námið er að finna á vef Háskóla Íslands.
Á fyrra námsári er hverjum nemanda úthlutað námsplássi á heilsugæslustöð og neminn fær sína klínísku þjálfun í meðgönguvernd á þeirri stöð út námstímann. Nemandi er á sama tíma í starfsþjálfun á öðrum heilbrigðisstofnunum þar sem fæðingarhjálp á sér stað og auk þess vinna nemendur í heimahúsum undir leiðsögn ljósmæðra.
Allar heilsugæslustöðvar hjá HH taka við nemum í ljósmóðurfræði. Nemendur eru á stöðvunum ákveðna daga í hverri viku þannig að þeir kynnist konunum/verðandi foreldrum og fylgi þeim eftir eins og kostur er.
Umsjón með klínísku námi ljósmæðra hjá HH hafa Karitas Ívarsdóttir og Ragnheiður Bachmann ljósmæður á Þróunarstofu.