Persónuvernd er mikilvæg

Persónuvernd er mikilvæg í allri starfsemi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og í því felst að starfsmenn virða mannhelgi allra sem til HH leita eða þar starfa.

Nauðsynlegt er að skrá og vinna ýmsar persónu- og heilsufarsupplýsingar til að geta veitt sem besta þjónustu og sinnt þeim verkefnum sem stofnuninni eru falin. 

Lögð er rík áhersla á að þagnarskylda og friðhelgi einkalífs sé virt við meðferð persónuupplýsinga og að upplýsingar séu varðveittar með öruggum hætti.

Sjúkraskrárupplýsingar

Til að óska eftir upplýsingum úr sjúkraskrá þarf að koma beiðni þess efnis til heilsugæslunnar sem þú ert skráður á. 

Það má gera með viðeigandi eyðublaði eða með fyrirspurn á Mínum síðum Heilsuveru þar sem fram koma þær upplýsingar sem beðið er um á eyðublaðinu

Vinsamlega kynntu þér nánari leiðbeiningar í kafla 7 í Persónuverndarstefnu HH  þar sem fjallað er um rétt þinn varðandi persónuupplýsingar sem skráðar eru um þig hjá HH

Persónuverndarstefna Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Í persónuverndarstefnu þessari skýrum við frá tilgangi skráningar persónuupplýsinga innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (hér eftir „HH“ eða „stofnunin“). Við tilgreinum hvaða persónuupplýsingar HH skráir, uppruna þeirra, á hvaða grundvelli og í hvaða tilgangi vinnsla þeirra fer fram, hvernig varðveislu upplýsinga er háttað, hvert þeim er miðlað og hvernig öryggis þeirra er gætt. 

Stefnan veitir einnig upplýsingar um hver réttur einstaklinga er til eigin upplýsinga, hverjar skyldur HH eru sem ábyrgðaraðili, hvernig hægt er að ná sambandi við persónuverndarfulltrúa okkar og rétt þinn til að kvarta til Persónuverndar. Öll vinnsla persónuupplýsinga á vegum HH fer fram á grundvelli laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og þeim lögum sem gilda um starfsemi stofnunarinnar.

Ef þú hefur spurningar varðandi persónuverndarstefnu HH eða vinnslu stofnunarinnar á persónuupplýsingum er þér bent á að hafa samband við persónuverndarfulltrúa HH í netfangið personuverndarfulltrui@heilsugaeslan.is

Fannst þér efnið hjálplegt?

Af hverju ekki?