Samkvæmt 4. grein laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 nær heilsugæsluþjónusta yfir almennar lækningar, hjúkrun, heilsuvernd og forvarnir, bráða- og slysamóttöku og aðra heilbrigðisþjónustu sem veitt er á vegum heilsugæslustöðva.

Heilsugæslan hefur skilgreint eftirfarandi 15 þætti sem grunnþjónustu heilsugæslustöðva:

  • skipuleg mótttaka læknis
  • skipuleg móttaka hjúkrunarfræðings
  • slysaþjónusta vegna smáslysa
  • símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga
  • símaþjónusta lækna
  • vaktþjónusta hjúkrunarfræðinga
  • vaktþjónusta/skyndikomur
  • mæðravernd
  • skipuleg síðdegisvakt lækna
  • ungbarnavernd
  • heilsugæsla eldri borgara
  • ferðamannabólusetningar
  • blóðsýnataka, önnur sýnataka
  • skólaheilsugæsla
  • reglubundnar ónæmisaðgerðir