Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu.

Þjónustan grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi.

Á síðum heilsugæslustöðvanna eru upplýsingar um þjónustuna sem veitt er á stöðvunum en einnig er starfrækt sérhæfð miðlæg þjónusta.

Nánar má lesa um megináherslur þjónustunnar í Þjónustustefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Veldu þína hverfisstöð úr listanum hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um þjónustu hennar.

Ef þú ert ekki viss um hvaða stöð þú tilheyrir getur þú slegið inn heimilisfangið þitt á forsíðunni og fengið upplýsingar um það eða skoðað kort.

Heilsugæslan vinnur samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 (pdf-skjal), gæðaáætlun heilbrigðisráðuneytis frá 1999 og í framhaldi af því stefnumótun Heilsugæslunnar í Reykjavík, síðar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sem hófst árið 2000.