Verum samtaka í uppeldinu

Námskeiðið Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar er sérstaklega þróað fyrir foreldra á Íslandi og stuðst er við viðurkennd fræði og vel rannsakaðar aðferðir.

Lögð er áhersla á að kenna foreldrum leiðir til að vera samtaka í uppeldinu og skapa æskileg uppeldisskilyrði sem ýtir undir færni sem líkleg er til að nýtast barninu til frambúðar.

Foreldrar læra aðferðir til að styrkja eigin hæfni, laða fram æskilega hegðun barnsins og fyrirbyggja erfiðleika á jákvæðan hátt. Námskeiðið byggir á Uppeldisbókinni. 

Námskeiðið á að henta öllum foreldrum ungra barna, a.m.k. að sex ára aldri.  

Hvert námskeið er samtals 8 klukkustundir, 2 klukkustundir í senn, alls 4 skipti. 

Til að námskeiðið gagnist sem best þarf að mæta í öll fjögur skiptin.

Næstu námskeið: 

  • Ekkert námskeið á döfinni 

Staðfestingarpóstur er sendur á netfang að skráningu lokinni. Hafið samband á namskeid.gmb@heilsugaeslan.is ef staðfestingarpóstur berst ekki.

Umsjón

Þetta námskeið er haldið af Geðheilsumiðstöð barna

Fyrirspurnum er svarað á namskeid.gmb@heilsugaeslan.is

Áhersla er lögð á jákvæðar aðferðir til að laða fram æskilega hegðun og fyrirbyggja erfiðleika.

 Foreldrum er kennt að:

  • Koma sér saman um skipulag uppeldisins og setja sér markmið til framtíðar.
  • Ákveða hvaða hegðun og færni foreldrum finnst eftirsóknarverð í fari barnsins.
  • Koma á föstum venjum frá upphafi sem setja ramma um daglegt umhverfi barnsins og veita því öryggi.
  • Hafa raunhæfar væntingar til barnsins og gefa skýr skilaboð um til hvers er ætlast af því.
  • Vera vakandi fyrir allri æskilegri hegðun barnsins og bregðast við með athygli, hrósi eða annarri umbun.
  • Velja og fylgja eftir fáum og skýrum reglum sem eru í samræmi við þroska og aldur barnsins.
  • Setja börnum skorður og hjálpa þeim að læra að setja sér eigin mörk.
  • Temja sér að vinna að því að fyrirbyggja erfiðleika fremur en að bíða þar til vandamál koma upp.
  • Hvetja markvisst til góðrar hegðunar með leiðsögn, beinni kennslu og síðast en alls ekki síst, með góðu fordæmi. Þetta þýðir að foreldrar þurfa að verða mjög meðvitaðir um sína eigin hegðun.
  • Verja reglulega tíma með barninu og skipuleggja skemmtilegar samverustundir allrar fjölskyldunnar.
  • Passa upp á sjálfan sig og makasambandið, leita aðstoðar þegar þarf.
  • Vinna saman að því að leysa verkefni eða vandamál sem upp koma.
  • Vanda sig og styðja hvort annað, en muna að enginn er fullkominn.

Samskonar námskeið eru haldin víðar um landið, t.d. á vegum heilsugæslu, félags- eða skólaþjónustu. Allir leiðbeinendur eru fagmenntaðir og hafa fengið sérstaka þjálfun.

Námskeiðið hefur hlotið marga styrki t.d. frá Fjölskylduráði, Lýðheilsusjóði, Félagsmálaráði Kópavogs, Forvarnanefnd Reykjavíkur og menntamálaráðuneyti.