Meðferðarteymi fyrir börn og unglinga
Á Heilsugæslunni Efra-Breiðholti er nú kominn til starfa sálfræðingur, sem sinnir börnum sem eiga við tilfinningalega vanlíðan að stríða með ráðgjöf, viðtalsmeðferð og eftirfylgd. Sálfræðingur, heimilislæknir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir starfa í nánu samstarfi og mynda meðferðarteymi mismunandi mönnuð hverju sinni eftir þörfum barnsins og fjölskyldunnar.
Vísbendingar um tilfinningalega vanlíðan barna og unglinga geta verið margvíslegar og oft með öðrum hætti en hjá fullorðnum. Þar má nefna óæskilegar breytingar í hegðun, óeðlilega hræðslu og ótta, leiða og depurð og svefntruflanir. Þá geta nýtilkomnir erfiðleikar í samskiptum t.d. við leikfélaga, skólafélaga, foreldra eða kennara verið vísbending um tilfinningalega vanlíðan. Tilfinningaleg vanlíðan getur jafnvel brotist út með líkamlegum kvörtunum ss langvinnum eða síendurteknum kviðverkjum, lystarleysi og fleiru.
Ef grunur vaknar hjá foreldrum, kennara eða leikskólakennara um tilfinningalega vanlíðan barns geta foreldrar snúið sér beint til heimilislæknis fjölskyldunnar óháð því hvar hann er með stofu.
Hann vísar þeim áfram til meðferðarteymis heilsugæslunnar ef nauðsyn krefur. Það er markmið að hafa enga biðlista.
Þeim fjölskyldum í hverfinu sem hafa ekki heimilislækni en óska eftir þjónustu meðferðarteymisins verður boðin skráning hjá heimilislækni í heilsugæslunni eftir því sem tök eru á.
Meðferðarteymið ákvarðar hvernig meðferð er háttað í hverju tilfelli allt eftir eðli vandamálsins. Þannig getur verið um að ræða einstaklingsmeðferð,viðtöl og fjölskyldumeðferð og/eða ráðgjöf til stofnana ss skóla eða leikskóla og annarra faghópa í nærumhverfi barnsins og fjölskyldu þess. Í einstaka tilfellum getur verið um að ræða vitjanir á heimili fjölskyldunnar. Þá er einnig hugsanlegt að vísa þurfi barninu/fjölskyldunni áfram á sérhæfðara þjónustustig til frekari greiningar og meðferðar.
Samstarfsaðilar eru leikskólar og grunnskólar í Efra-Breiðholti, Þjónustumiðstöð Breiðholts, Miðstöð heilsuverndar barna og Barna og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL)
Október 2007