Um Geðheilsu - eftirfylgd/iðjuþjálfun

Um Geðheilsu - eftirfylgd/iðjuþjálfun
Starfið skiptist í þrjá þætti:

Teymi fagaðila, sem í eru tveir iðjuþjálfar og starfsmaður með BA-próf í sálfræði, starfar út frá hugmyndafræði valdeflingar og “case management”. Notendur sem sækja þjónustuna hafa umboðsmann innan teymisins sem tryggir góða yfirsýn.

 

Teymið leggur áherslu á samstarf við þá aðila sem koma að málefnum fólks með geðræn vandamál. Náið samstarf er við notendahópinn Hugarafl.


Eftirfylgd
byggir á þjálfun, viðtölum, fræðslu og ráðgjöf.
Gert er mat í upphafi þar sem farið er yfir hvernig staðan er í  dag og hverju skuli stefnt að. Sálfræðingur og iðjuþjálfar ákvarða í samvinnu við einstaklinginn hvaða leiðir skuli farnar og veita viðeigandi meðferð.
Mikilvægt er að vinna í því umhverfi sem vandamálin birtast í, til að þjónustan nýtist einstaklingnum sem best. Eftirfylgd fer til dæmis fram á heimili einstaklinganna, á vinnustað, í skóla eða annars staðar í nærumhverfi.

Tengslanet byggist á því að virkja fjölskyldu, vini og / eða aðra sem að einstaklingnum standa.
Aðstandendur eru studdir við að átta sig á hlutverki sínu og þannig tekið tillit til allra aðila í tengslanetinu, þ.e. fjölskyldunnar og notandans. Haldnir eru fundir, farið í vitjanir og unnið að skipulagi tengslanets. Einnig fer fram fræðsla og ráðgjöf.

Hópastarf.
Aðstandendahópur. Starfandi er aðstandendahópur í umsjá iðjuþjálfa. Markmiðið er að styðja og styrkja aðstandendur, hvetja þá til að huga að eigin heilsu og gefa þeim möguleika á að deila sameiginlegri reynslu sinni.

Hugarafl.

Markmið Hugarafls eru að skapa hlutverk, efla notendaáhrif, vinna gegn fordómum með sýnileika, vinna að verðmætasköpun út frá reynslu fólks með geðræn vandamál og atvinnusköpun með því að þróa þjónustu út frá reynslu notenda.

Hugarafl hittist á föstum fundum með iðjuþjálfa eða sálfræðingi tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13:00-15:00. Þeim sem óska eftir að taka þátt í hópnum er boðið upp á forviðtal þar sem farið er yfir markmið hópsins og vinnulag. Hópurinn hefur aðgang að iðjuþjálfa / sálfræðingi utan hefðbundins fundartíma til handleiðslu verkefna, einstaklingsviðtala eða annarrar eftirfylgdar.

Hugarafl er með vefsíðu. Slóðin er www.hugarafl.is.

  


 


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Eftirfylgd geðsjúkra/iðjuþjálfun

Borgartún 22, 105 Reykjavík
Sími: 414-1550, Fax:
Netfang:
audur.axelsdottir@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

8:00 - 16:00


Strætó - Mjódd

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;