Brjóstagjöfin er almennt ánægjulegur tími fyrir móður og barn og styrkir tengslin milli þeirra. Nærveran og hlýjan sem skapast við brjóstagjöf er barningu mikilvæg og brjóstamjólkin er fullkomin næring fyrir barnið.
Í byrjun geta þó ýmis vandamál komið upp og er þá mikilvægt að geta leitað til starfsfólks ung- og smábarnaverndar og fengið góð ráð og aðstoð.
Á Ung- og smábarnasviði Þróunarstofu starfar brjóstagjafaráðgjafi sem hefur alþjóðlegt próf í brjóstagjafaráðgjöf, Jóna Margrét Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur. Hægt er að fá viðtal við hana varðandi aðstoð við brjóstagjöf og vandamál tengd henni með því að hringja í síma 585-1350 alla virka daga frá kl. 8:30 til 14:00.
Bæklingurinn Árangursrík brjóstagjöf (pdf-skjal) fjallar um hvernig hægt sé að ná góðri færni við brjóstagjöf. Bæklingurinn er gefinn út af Miðstöð heilsuverndar barna.
Bæklingurinn Brjóstamjólk - meðhöndlun og geymsla (pdf-skjal) útskýrir allt varðandi geymslu, frystingu og aðra meðhöndlun brjóstamjólkur.
Hægt er að panta bæklingana á Þróunarstofu í síma 585-1350