Mæðravernd

Mæðravernd

Mæðravernd stendur öllum verðandi mæðrum/foreldrum til boða og er þeim að kostnaðarlausu. Hver heilsugæslustöð sinnir þeim sem búsettir eru á  þjónustusvæði stöðvarinnar eða hafa heimilislækni á stöðinni.

Mæðravernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er að:

  • að stuðla að heilbrigði móður og barns.
  • að veita faglega umönnun, stuðning og ráðgjöf.
  • að greina áhættuþætti og bregðast við þeim.
  • að veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu.

Stuðst er við klíniskar leiðbeiningar um Meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu.

Hægt er að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður á hverri stöð en einnig má finna fjölbreytt fræðsluefni um meðgöngu og fæðingu á fræðslusíðunni.

Námskeið um undirbúning fæðingar eru í boði á heilsugæslustöðvunum og fleiri námskeið eru í boði í Mæðravernd Þróunarstofu heilsugæslunnar.

Veldu þína hverfisstöð úr listanum hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um mæðraverndina.

Ef þú ert ekki viss um hvaða stöð þú tilheyrir getur þú slegið inn heimilisfangið þitt (í þgf) á forsíðu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og fengið upplýsingar um það eða skoðað kort.

Mæðravernd á Þróunarstofu heilsugæslunnar (áður Miðstöð mæðraverndar) er bakland fyrir heilsugæslustöðvar varðandi sérfræðiþjónustu um mæðravernd og þar er einnig hægt að fá ráðgjöf hjá ljósmæðrum og læknum í síma: 585-1400.


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Læknisþjónusta

Læknisþjónusta Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Mæðravernd

Mæðravernd

Ungbarnavernd

Ungbarnavernd

Skólaheilsugæsla

Skólaheilsugæsla

Heimahjúkrun

Heimahjúkrun


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;