Ung- og smábarnavernd

Ung- og smábarnavernd

Tilgangur og markmið ung- og smábarnaverndar er að fylgjast reglulega með heilsu og framvindu á þroska barna. Þannig er fylgst með vitsmuna- og tilfinningaþroska, ásamt félagslegum og líkamlegum þroska frá fæðingu til sex ára aldurs.

 

Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna og þannig stuðlað að því, að börnum séu búin bestu möguleg uppvaxtarskilyrði á hverjum tíma, fræðslu og ráðgjöf og framkvæmd ónæmisaðgerða. Við frávik ber að tryggja að barn fái viðeigandi stuðning og þjónustu fagaðila.

 

Skömmu eftir fæðingu berst fæðingatilkynning á þá heilsugæslustöð sem sinnir svæðinu sem barnið býr á. Það tekur mislangan tíma fyrir tilkynninguna að berast heilsugæslustöðinni í pósti og er foreldrum því ráðlagt að hafa samband við sína heilsugæslustöð fljótlega eftir að heim er komið af fæðingadeildinni.

 

Öllum foreldrum nýfæddra barna er boðið upp á heimavitjanir fyrstu vikurnar og að koma síðan í kjölfarið á heilsugæslustöðina með barnið í skoðanir. Í heimavitjunum skoðar hjúkrunarfræðingur barnið, metur þroska þess, þyngd og höfuðummál. Foreldrar fá ráðgjöf og fræðslu varðandi ummönnun barnsins og eigin líðan.

 

Þegar barnið er sex vikna gamalt er læknisskoðun á heilsugæslustöð og við 3ja mánaða aldur hefjast bólusetningar. Hefðbundnar bólusetningar eru framkvæmdar samkvæmt fyrirmælum sóttvarnalæknis hjá Landlæknisembættinu. Foreldrum er ávallt velkomið að hafa samband við hjúkrunarfræðinga í ung- og smábarnavernd umfram þessar skipulögðu skoðanir.

 

Hér má sá yfirlit yfir skoðanir og bólusetningar í ung- og smábarnavernd eftir mismunandi aldri.

 

Nánari upplýsingar um ung- og smábarnaverndina færð þú á þinni heilsugæslustöð. Ef þú ert ekki viss um hvaða stöð þú tilheyrir getur þú slegið inn heimilisfangið þitt (í þgf) á forsíðu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og fengið upplýsingar um það eða skoðað kort.

 

Á fræðslusíðunni er fjölbreytt fræðsluefni um barnið og umönnun þess.

 

Þroska- og hegðunarstöð sinnir sérhæfðri greiningu og ráðgjöf vegna þroska- og hegðunarfrávika hjá börnum.

 

Á Ung- og smábarnaverndarsviði Þróunarstofu er móttaka fyrir börn með fæðingarþyngd 1500 g og minna og eru fædd fyrir 32 vikna meðgöngu. Hjúkrunarfræðingur og barnalæknir sinna þjónustunni. Markmiðið er að mæta sérstökum þörfum barna með lága fæðingaþyngd í samstarfi við göngudeild barnaviðs LSH. Móttakan felst í almennri/sérhæfðri ung- og smábarnavernd og þverfaglegu eftirliti með þroska og hegðun.

 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Læknisþjónusta

Læknisþjónusta Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Mæðravernd

Mæðravernd

Ungbarnavernd

Ungbarnavernd

Skólaheilsugæsla

Skólaheilsugæsla

Heimahjúkrun

Heimahjúkrun


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;