Þjónustu heilsugæslulækna er hægt að nálgast með því að bóka viðtalstíma hjá þeim á heilsugæslustöðvum. Þeir hafa opið fyrir almenna móttöku vegna bráðra og langvinnra veikinda, og vegna slysa, alla virka daga á þjónustutíma stöðvarinnar.
Heilsugæslulæknar sinna ennfremur bráðatilfellum utan bókaðra tíma. Hver stöð hefur lækni á vakt til að sinna slíkum tilfellum yfir dagtímann og stöðvarnar hafa opna síðdegisvakt lækna eftir að almennum þjónustutíma lýkur, flestar á milli kl. 16 og 18.
Þá veita heilsugæslulæknar símaráðgjöf, gefa út vottorð vegna veikinda og slysa og fara í sérstökum tilfellum í vitjanir til sjúklinga. Þeir taka einnig þátt í ungbarna- og mæðravernd heilsugæslustöðvanna.
Sérfræðingar í öðrum greinum læknisfræðinnar en heimilislækningum starfa innan Heilsugæslunnar. Þetta eru t.d. kvensjúkdómalæknar, barnalæknar og lungnalæknar. Þjónustu þeirra er hægt að nálgast með tilvísunum heilsugæslulækna. Þeir starfa ennfremur á sérstökum sérfræðimiðstöðvum sem starfræktar eru innan Heilsugæslunnar.
Veldu þína hverfisstöð úr listanum hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um læknisþjónustuna.
- Heilsugæslan Árbæ
- Heilsugæslan Efra-Breiðholti
- Heilsugæslan Efstaleiti
- Heilsugæslan Fjörður
- Heilsugæslan Garðabæ
- Heilsugæslan Glæsibæ
- Heilsugæslan Grafarvogi
- Heilsugæslan Hamraborg
- Heilsugæslan Hlíðum
- Heilsugæslan Hvammi
- Heilsugæslan Lágmúla
- Heilsugæslan Miðbæ
- Heilsugæslan Mjódd
- Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
- Heilsugæslan Seltjarnarnesi
- Heilsugæslan Sólvangi
Ef þú ert ekki viss um hvaða stöð þú tilheyrir getur þú slegið inn heimilisfangið þitt (í þgf) á forsíðu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og fengið upplýsingar um það eða skoðað kort.