Leiðbeiningar um töku þvagsýna

Leiðbeiningar um töku þvagsýna

Almennar reglur

Æskilegt er að þvagsýni sé tekið við fyrstu þvaglát að morgni. Mögulegt er að taka það seinna um daginn en þá skulu helst vera meira en 2 tímar liðnir frá síðustu þvaglátum. 
Hæfilegt magn er 10-50 ml. Sjá mælistiku á glasi. 
Sýni skal geymt í kæliskáp þar til farið er með það í rannsókn. 
Mikilvægt er að koma sýninu sem fyrst til rannsóknar. 
Merkið ílátið með nafni, kennitölu, dagsetningu og tíma sem sýnið er tekið.  
Beiðni um rannsókn þarf alltaf að fá hjá lækni eða hjúkrunarfræðingi.
 
Tekið er við sýnum á heilsugæslustöðinni frá kl. 8:00 til 11:00 á rannsóknarstofunni. Eftir þann tíma getur heimilislæknir/hjúkrunarfræðingur ákveðið móttöku sýnis. 
 
Miðbunuþvag

Taka skal miðbunuþvag þegar tilgangur rannsóknarinnar er ræktun baktería.
Miðbunuþvag þýðir að byrja skal að kasta þvagi áður en sýni er tekið, þannig að fyrsta bunan komi ekki með í sýnið.
 
Taka skal miðbunuþvag, eftir að svæðið umhverfis þvagrásina hefur verið hreinsað vel með volgu vatni. Notið ekki sápu. Fyrir konur gildir sérstaklega að gæta þess vandlega að strjúka framan frá og aftur til þess að koma í veg fyrir að sýklar frá endaþarmi berist í þvagrás. Einnig er gott að halda sundur skapabörmum ef mögulegt er. Ef konur eru með miklar tíðablæðingar eða útferð getur verið gott ráð að nota tíðatappa. Greinið lækni ykkar frá þessu svo hann geti skráð þessar upplýsingar í beiðninni sem fylgir sýninu á sýkladeild. Karlmenn ættu að draga upp forhúð áður en sýni er tekið.
 
Gætið þess að yfirfylla ekki ílátið, en nægilegt magn fyrir almenna ræktun er 10 ml. Sjá mælistiku á þar til gerðu glasi.
 
Hjá börnun getur oft verið erfitt að taka miðbunuþvag og skal þá taka sýnið beint.
 
Fyrsta þvag

Þegar tilgangur þvagrannsóknarinnar er að athuga hvort um sé að ræða klamýdíusýkingu er tekið svokallað fyrsta þvag. Þetta þýðir að fyrsta bunan fer beint í þvagprufuglas. 
 
 


Heilsugæslustöð

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Sólvangur

Sólvangsvegi 2, 220 Hafnarfirði
Sími: 550-2600, Fax: 550-2601
Netfang:
solvangur@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

Virka daga kl. 8:00 - 17:00. Kvöldmótaka kl. 16:00 - 20:00 á virkum dögum.

Sjá staðsetningu á korti


Strætó - Sólvangur

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is

Hvað viltu gera? - Sólvangi



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;