Gjaldskrá fyrir sjúkratryggða
Velferðarráðuneytið hefur með "Reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu", sem gekk í gildi 1. janúar 2012, ákveðið eftirfarandi greiðslur sjúkratryggðra fyrir þjónustu heilsugæslunnar.
Sjúkratryggðir kunna að þurfa að greiða önnur gjöld fyrir heilbrigðisþjónustu, t.d. þegar heilsugæslulæknar vísa þeim til sérfræðinga eða í sérstakar læknisfræðilegar rannsóknir. Þau gjöld koma fram í reglugerðinni.
Eftirtaldir greiða samkvæmt Aldraðir I:
Aldraðir 67 - 69 ára sem hafa engan eða skertan lífeyri.
Eftirtaldir greiða samkvæmt Aldraðir II:
Öryrkjar
Aldraðir 70 ára og eldri.
Aldraðir 67 - 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs.
Aldraðir 60 - 69 ára sem njóta óskerts ellilífeyris.
Þeir sem hafa verið atvinnulausir lengur en sex mánuði. Framvísa þarf vottorði frá Vinnumálastofnun.
Einstaklingar 18-66 ára (og atvinnulausir skv. vottorði) sem hafa greitt 29.500 kr. á almanaksári eiga rétt á afsláttarskírteini, upphæðin er 23.600 kr. fyrir aldraða I, 7.400 kr. fyrir aldraða II og 8.900 kr. fyrir börn með sama fjölskyldunúmer. Nánari upplýsingar um afsláttarskírteini og gjöld þeirra sem eru með afsláttarskírteini eru í 14. og 15. grein reglugerðarinnar.
Samkvæmt reglugerðinni er nú greitt kostnaðarverð fyrir bóluefni (hvern skammt). Gjaldskrá bólusetninga er uppfærð mánaðarlega í samræmi við breytingar á heildsöluverði bóluefna..
Komur
Koma á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, kl. 8:00 - 16:00,
almennt gjald 1.000 kr.
aldraðir I 800 kr.
aldraðir II 500 kr.
Koma á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma,
almennt gjald 2.600 kr.
aldraðir I 2.080 kr.
aldraðir II 1.300 kr.
Undanþegin greiðslu komugjalda eru börn undir 18 ára aldri og börn með umönnunarkort.
Undanþegnir gjaldskyldu eru þeir sem koma vegna mæðra- og ungbarnaverndar og heilsugæslu í skólum.
Vitjanir
Vitjun læknis á dagvinnutíma, kl. 8:00 - 16:00,
almennt gjald 2.800 kr.
aldraðir I 2.200 kr.
aldraðir II 1.400 kr.
Vitjun læknis utan dagvinnutíma,
almennt gjald 3.800 kr.
aldraðir I 3.200 kr.
aldraðir II 1.850 kr.
Undanþegin greiðslu fyrir vitjanir eru börn undir 18 ára aldri og börn með umönnunarkort.
Rannsóknir og greiningar
Rannsókn með beiðni til rannsóknarstofu,
almennt gjald 1.800 kr.
aldraðir I 1.300 kr.
aldraðir II 660 kr.
börn yngri en 18 ára 260 kr.
börn með umönnunarkort, 0 kr.
Krabbameinsleit,
almennt gjald 3.700 kr.
börn yngri en 18 ára 3.700 kr.
aldraðir I 3.100 kr.
aldraðir II 1.800 kr.
Bólusetningar
Auk komugjalda greiða sjúkratryggðir fyrir bólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega.
Í ungbarnavernd er ekki greitt fyrir bólusetningar við stífkrampa, mænusótt, rauðum hundum og MMR (mislingar + hettustótt + rauðir hundar), né heldur við lungnabólgubakteríu (pneumokokkum).
Ekkert er greitt fyrir hefðbundnar bólusetningar í heilsugæslu í skólum.
Þá greiða 12 ára stúlkur ekkert fyrir HPV (Cervarix), en aðrir greiða gjald fyrir HPV-bólusetningu.
Gjöld vegna bólusetninga skulu einnig greidd í heimahjúkrun.
Önnur þjónusta
Auk komugjalda skulu sjúkratryggðir 18 ára og eldri greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:
Þungunarpróf 640 kr.
Streptokokkarannsóknir 740 kr.
CRP (C-reaktíft prótein) 850 kr.
HbA 1c (glýkosýlerað hemóglóbín) 1.600 kr.
Lyfjaleit í þvagi 2.100 kr.
Lykkja (t) 6.300 kr.
Berklapróf - Mantoux (Tuberkulin) sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Hormónalykkja sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Námskeið
Foreldrafræðsla á heilsugæslustöð/Mæðravernd Þróunarstofu, gildir fyrir báða foreldra, 8.500 kr.
Uppeldisnámskeið fyrir foreldra
- Uppeldisnámskeið fyrir foreldra, 8.500 kr. fyrir eitt foreldri, 10.600 kr. fyrir báða foreldra.
- Uppeldis- og foreldrafærninámskeið fyrir foreldra barna með ADHD, 9.500 kr. fyrir eitt foreldri, 12.700 kr. fyrir báða foreldra.
- PMT foreldrafærninámskeið, 15.800 kr. fyrir eitt foreldri, 21.100 kr. fyrir báða foreldra.
- Snillingarnir - færniþjálfunarnámskeið fyrir 8-10 ára börn með ADHD, 7.400 kr.
Læknisvottorð
Vottorð vegna fjárhagslegrar aðstoðar við fötluð og sjúk börn, 0 kr.
Vottorð vegna endurhæfingarlífeyris, 0 kr.
Örorkuvottorð vegna lífeyristrygginga, 0 kr.
Örorkuvottorð vegna slysatrygginga, 0 kr.
Vottorð um fjarvistir nemenda úr skólum, 490 kr.
Framhaldsvottorð vegna slysatrygginga, 490 kr.
Áverkavottorð vegna slysatrygginga, 970 kr.
Læknisvottorð vegna beiðni um þjálfun, 970 kr.
Læknisvottorð vegna öflunar hjálpartækja, 970 kr.
Læknisvottorð vegna lengingar fæðingarorlofs, 970 kr.
Læknisvottorð vegna hreyfihömlunar (uppbót v. reksturs bifreiðar), 970 kr.
Læknisvottorð vegna heimahjúkrunar, 970 kr.
Læknisvottorð vegna vistunar sjúklings erlendis, 970 kr.
Læknisvottorð vegna umsóknar um lyfjaskírteini, 970 kr.
Vottorð vegna sjúkranudds, 970 kr.
Læknisvottorð vegna sjúkradagpeninga, 970 kr.
Læknisvottorð vegna ferðakostnaðar innanlands, 970 kr.
Læknisvottorð vegna umsóknar um styrk og uppbót til kaupa á bifreið fyrir fatlaða, 970 kr.
Vottorð vegna bóta úr slysa- og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, án greinargerðar, 970 kr.
Vottorð um fjarvistir til atvinnurekenda, 1.500 kr.
Vottorð um heilsufar nemenda til skóla, leikskóla og sumarbúða, 1.500 kr.
Vottorð um ónæmisaðgerðir og alþjóðaónæmisskírteini, 1.500 kr.
Vottorð um undanþágu til bílbeltanotkunar, 1.500 kr.
Vottorð vegna dagmóðurstarfa, 1.500 kr.
Vottorð vegna endurgreiðslu ferðakostnaðar, s.s. ferðarofs og til skattayfirvalda, 1.500 kr.
Vottorð vegna veitingar ökuleyfis, 1.500 kr.
Vottorð vegna fóstureyðinga og ófrjósemisaðgerða, skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 3.600 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Vottorð vegna umsókna um örorkubætur til lífeyrissjóða skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 3.600 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Vottorð um heilsufar eða vinnufærni vegna umhverfis eða atvinnu, þ.m.t. vegna atvinnuréttinda, 4.300 kr.
Vottorð vegna byssuleyfis, 4.300 kr.
Vottorð vegna skóla erlendis, 4.300 kr.
Vottorð til lögmanna og tryggingarfélaga vegna sjúkdóma eða slysa skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 3.600 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Vottorð til lögreglu og sýslumanna vegna dvalar- og/eða atvinnuleyfa hér á landi og dvalar eða starfa erlendis, skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 3.600 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Vottorð vegna ættleiðinga, skal miða við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 3.600 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
---
Gjaldskrá fyrir ósjúkratryggða
Greiðslur einstaklinga þegar milliríkjasamningar um almannatryggingar gilda ekki.
Velferðarráðuneytið hefur með "Reglugerð um heilbrigðisþjónustu við þá sem ekki eru sjúkratryggðir samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og greiðslur þeirra fyrir heilbrigðisþjónustuna" sem gekk í gildi 1. janúar 2012, ákveðið eftirfarandi greiðslur þeirra fyrir þjónustu heilsugæslunnar.
Einstaklingur tryggður í EES-landi (þetta á einnig við um íslenska ríkisborgara með lögheimili í öðru EES-landi) sem þarf á skyndilegri og nauðsynlegri læknishjálp að halda þegar hann dvelst hér á landi á að greiða eins og þeir sem eru sjúkratryggðir á Íslandi. Forsenda þess er þó að hlutaðeigandi leggi fram:
- Evrópska sjúkratryggingakortið
- Gilt bráðabirgðavottorð E-111
- Gilt vottorð frá tryggingarstofnun í öðru EES landi E-104
- Gilt vottorð E-106 útsendir starfsmenn
- Vegabréf
Athugið vel gildistíma allra gagna. Geti hlutaðeigandi ekki framvísað evrópska sjúkratryggingakortinu (vottorði) og vegabréfi skal heilsugæslustöð krefja hann um fulla greiðslu samkvæmt reglugerð.
Ferðamenn frá Norðurlöndum þurfa ekki að framvísa evrópska sjúkratryggingakortinu, aðeins persónuskilríkjum sem eru útgefin í búsetu landi.
Heilsugæslustöðin skal taka ljósrit af evrópska sjúkratryggingakortinu (vottorði) sjúklings, vegabréfi (eða persónuskilríkjum Norðurlandabúa) og greinargerð læknis og senda til aðalgjaldkera Heilsugæslunnar, sem sendir gögnin með reikningi til Sjúkratrygginga Íslands.
Komur
Fyrir komu á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, 6.200 kr.
Fyrir komu á heilsugæslustöð vegna mæðra- og ungbarnaverndar, 6.200 kr.
Fyrir komu á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma,
þ.e. milli kl. 16:00 og 8:00 og á laugardögum og helgidögum, 9.200 kr.
Vitjanir
Fyrir vitjun læknis á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, 13.300 kr.
Fyrir vitjun læknis á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma, 16.600 kr.
Fyrir vitjun annarra en lækna á heilsugæslustöð, 6.700 kr.
Bólusetningar
Auk komugjalda greiða ósjúkratryggðir fyrir bólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega.
Bóluefni vegna barnabólusetninga
Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir barnabólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega.
Önnur þjónusta
Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:
- Þungunarpróf 650 kr.
- Streptokokkarannsóknir 750 kr.
- CRP (C-reaktíft prótein) 850 kr.
- HbA 1c (glýkosýlerað hemóglóbín) 1.600 kr.
- Lyfjaleit í þvagi 2.000 kr.
- Lykkja (t) 6.300 kr.
- Hormónalykkja sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
- Berklapróf - Mantoux (Tuberkulin) sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
Foreldrafræðsla á heilsugæslustöð/Mæðravernd Þróunarstofu, gildir fyrir báða foreldra, kr. 8.500 kr.
Uppeldisnámskeið fyrir foreldra
- Uppeldisnámskeið fyrir foreldra, 8.500 kr. fyrir eitt foreldri, 10.600 kr. fyrir báða foreldra.
- Uppeldis- og foreldrafærninámskeið fyrir foreldra barna með ADHD, 9.500 kr. fyrir eitt foreldri, 12.700 kr. fyrir báða foreldra.
- PMT foreldrafærninámskeið, 15.800 kr. fyrir eitt foreldri, 21.100 kr. fyrir báða foreldra.
- Snillingarnir - færniþjálfunarnámskeið fyrir 8-10 ára börn með ADHD, 7.400 kr.
Gjöld vegna krabbameinsleitar (legstroks og mynd af brjóstum) á heilsugæslustöð, greiðist til viðbótar við komugjald, 3.700 kr.
Gjöld fyrir læknisvottorð skulu miðast við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 5.000 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.
Fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknarstofu og vegna rannsóknar á sýni sem sent er til rannsóknar í rannsóknarstofu skal greiða 3.400 kr. og til viðbótar 100% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna.
Fyrir hverja komu til geisla- og myndgreiningar skal greiða 3.400 kr. og til viðbótar 100% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna.
Fyrir nauðsynlega túlkaþjónustu skal sjúklingur greiða fullt gjald samkvæmt samningi Ríkiskaupa þjónustuaðila um túlkaþjónustu.
Tryggingastaða einstaklinga
Komin er á tenging á milli Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Sjúkratrygginga Íslands sem uppfærir tryggingastöðu sjúklinga einu sinni á sólarhring. Sögukerfið sýnir rétta tryggingastöðu einstaklinga hvort sem viðkomandi er sjúkratryggður eða ekki. Ef það koma fyrirspurnir frá sjúklingi, er hægt að hafa samband við Sjúkratryggingar Íslands í síma: 515-0003 eða í netsamtali inn á www.tr.is
Almennt netfang aðalgjaldkera Heilsugæslunnar er gjaldkeri@heilsugaeslan.is