Almennar bólusetningar
Mikilvægt er fyrir alla að hafa örugga grunnbólusetningu gegn mænusótt, stífkrampa og barnaveiki. Endurtaka þarf þessar bólusetningar á 10 ára fresti ef hætta er á smiti.
Heimilislæknar gefa upplýsingar um hvað þarf að gera til þess að vera ávallt sem best varinn gegn hættulegum sjúkdómum sem hægt er að bólusetja fyrir.
Bólusetningar í ung- og smábarnavernd
Bólusett er á heilsugæslustöðvunum í ung- og smábarnavernd samkvæmt fyrirmælum landlæknis.
Lesa meira um ungbarnabólusetningar
Bólusetningar sem eru framkvæmdar í grunnskólunum:
12 ára börn (7. bekkur) eru bólusett gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum.
14 ára unglingar (9. bekkur) eru bólusettir gegn mænusótt, barnaveiki, stífkrampa og kíghósta.
Lesa meira um bólusetningar í grunnskólum
Ferðamannabólusetningar
Allar almennar ferðamannabólusetningar eru framkvæmdar á heilsugæslustöðvunum og á Göngudeild sóttvarna.
Mikilvægt er að hafa samband með góðum fyrirvara fyrir ferð.
Inflúensubólusetningar
Á haustin fer fram á heilsugæslustöðvum bólusetning gegn inflúensu hjá 60 ára og eldri og þeim sem haldnir eru langvinnum sjúkdómum. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag má fá á heilsugæslustöðvunum.
Lungnabólgubólusetningar
Allir eldri en 60 ára ættu á láta bólusetja sig á 10 ára fresti gegn pneumokokkum til að verjast pneumokokkalungabólgu.
Bólusetning gegn pneumókokkum getur einnig verið gagnleg hjá eftirtöldum hópum:
- Einstaklingar, börn og fullorðnir, með ónæmisbælandi sjúkdóma
- Einstaklingar án milta vegna slyss eða sjúkdóms
- Einstaklingar á ónæmisbælandi meðferð
- Einstaklingar með HIV sýkingu
- Einstaklingar með langvarandi hjarta-, lungna- og nýrnasjúkdóma
- Einstaklingar með sykursýki
- Einstaklingar sem þurfa að undirgangast kuðungs ígræðslu
- Einstaklingar með mænuvökvaleka