Barnið

Barnið

Hér er finna fræðsluefni um barnið, umönnun þess og uppeldi.

Meðal annars er fjallað mjög ítarlega um brjóstagjöf en einnig eru hér leiðbeiningar um þurrmjólkurgjöf.

Í bæklingnum Næring ungbarna eru leiðbeiningar um fæðuval fyrir barnið fyrsta árið.  

Fjölbreytt umfjöllun er um vöxt og þroska.

Bæklingurinn Að verða maður með mönnum fjallar um þroska barna að tveggja ára aldri,
Lengi býr að fyrstu gerð leiðbeinir um hvatningu og hreyfileiki ungbarna og svo eru hugmyndir um málörvun fyrir ung börn.
Einnig eru leiðbeiningar sem varða börn sem skekkja höfuð og lin börn.

Margir bæklingar eru í boði um slysavarnir sem byrja stax á meðgöngu og eru breytilegar eftir aldri barnsins.
Margs er að gæta varðandi sumarfrí á sólarströnd og val á barnaskóm.

Ýmsar upplýsingar um heilsu barnsins:

 

Í fyrstu heimavitjun hjúkrunarfræðings fá foreldrar afhenta Barnamöppu sem inniheldur fræðsluefni. Einnig fá þeir afhent fræðsluefni í hinum ýmsu heimavitjunum og heimsóknum á heilsugæslustöð þar til barnið verður 6 ára.

Nánari upplýsingar um ung- og smábarnavernd má fá á undir liðnum Þjónusta á Heilsugæslustöðvum og á síðum heilsugæslustöðvanna.

Einnig má benda á íslenskar og erlendar vefsíður.

Þroska- og hegðunarstöð sinnir sérhæfðri greiningu og ráðgjöf vegna þroska- og hegðunarfrávika hjá börnum.

 

 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

6H heilsunnar

Heilsuvefurinn 6H


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;