Heilsugæslu í skólum er sinnt af hjúkrunarfræðingum og læknum stöðvarinnar og er framhald af ung-og smábarnavernd. Hjúkrunarfræðingar hafa fastan viðverutíma í skólunum.
Markmið skólaheilsugæslu er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Helstu áherslur í skólaheilsugæslu eru fræðsla og heilsuefling, bólusetningar, skimanir og skoðanir og umönnun veikra og slasaðra barna ásamt ráðgjöf til nemenda, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans.
Annast er um slys sem aðrir geta ekki sinnt og verða á meðan hjúkrunarfræðingurinn er í skólanum. Ef slys eða meiðsli verða og enginn hjúkrunarfræðingur eða læknir er í skólanum er starfsmönnum skólans bent á að leita til heilsugæslustöðvarinnar.
Sjá nánari upplýsingar um heilsuvernd skólabarna. Einnig er bent á Heilsuvefinn 6H