Hægt er að fá samband við vakthafandi hjúkrunarfræðing í síma 550-2600, virka daga frá kl. 8:00 til 20:00.
Hjúkrunarfræðingur greinir erindi fólks, svarar fyrirspurnum, gefur ráðleggingar, bókar í bráðatíma hjá heimilislæknum eða vísar á á vaktina á stöðinni.
Smáslysaþjónusta er á stöðinni. Þar er slysa- og aðgerðastofa, þar sem auðvelt er að búa um og sauma sár og gera smáaðgerðir. Bráðatilvik hafa alltaf forgang.
Utan ofangreinds opnunartíma er hægt að leita til Læknavaktarinnar í Smáranum. Síminn er 1770.
Ef um alvarleg slys eða lífshættuleg bráð veikindi er að ræða, skal hafa samband við neyðarlínuna í síma 112.