Ungbarnavernd

Ungbarnavernd

Fylgst er reglubundið með vexti og þroska barnanna. Ráðgjöf af ýmsu tagi m.a. um brjóstagjöf, mataræði og slysavarnir er mikilvægur þáttur eftirlitsins. Bólusett er gegn barnaveiki, stífkrampa, kíghósta, mænuveiki, heilahimnubólgum, hettusótt, rauðum hundum og mislingum.

Fyrstu vikurnar eftir fæðingu fara hjúkrunarfræðingar stöðvarinnar í vitjanir heim til barnanna. Foreldrar eru því beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið. Fyrsta læknisskoðun er við 6 vikna aldur. Reglubundnar skoðanir eru hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs.

Á fimmtudögum er opið hús fyrir foreldra með ung börn frá kl. 13:00 til 14:00. Foreldrar geta komið án þess að panta tíma áður og fengið ráð hjá hjúkrunarfræðingum um uppeldi og umönnun barna sinna

Skoðanir og bólusetningar:

Aldur Hver skoðar Hvað er gert
< 6 vikna  Hjúkrunarfr.  Heimavitjanir 
6 vikna  Hjúkrunarfr. og læknir   Skoðun 
9 vikna  Hjúkrunarfr.  Heimavitjun eða skoðun á heilsugæslustöð 
3 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
5 mánaða  Hjúkrunarfr.  Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
6 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C 
8 mánaða  Hjúkrunarfr.  Skoðun og bólusetning gegn Meningókokkum C 
10 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun 
12 mánaða  Hjúkrunarfr.  Skoðun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu, pneumókokkum í annarri sprautu. 
18 mánaða  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun og bólusetning gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu, PEDS Mat foreldra á þroska barna 
2 1/2 árs  Hjúkrunarfr. og læknir  Skoðun, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun 
3 ára  Tannlæknir  Forvarnarskoðun - tanneftirlit. Ókeypis skoðun hjá tannlæknum sem vinna í umboði Sjúkratrygginga Íslands. Nauðsynlegt að skoðun fari fram áður en barnið nær fjögurra ára aldri.  
4 ára  Hjúkrunarfr.  Skoðun, sjónpróf, PEDS Mat foreldra á þroska barna, BRIGANCE þroskaskimun og bólusetning gegn kíghósta, barnaveiki og stífkrampa í einni sprautu 


Sjá nánar um ungbarnavernd og einng fjölbreytt fræðsluefni um barnið og umönnun þess á fræðslusíðunni.


Heilsugæslustöð

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;