Mæðravernd

Mæðravernd

Allar þungaðar konur búsettar á svæði heilsugæslustöðvarinnar eru velkomnar í mæðraskoðun.

Æskilegt er að þungaðar konur komi í fyrstu skoðun 10-12 vikum eftir síðustu blæðingar en velkomið er að hafa samband við lækni eða ljósmóður fyrr ef óskað er. Fjöldi mæðraskoðana fer eftir aðstæðum, algengt er 8-10 skipti. Faðir eða annar stuðningsaðili og eldri systkini eru velkomin með.
Í 18. - 19. viku meðgöngu er boðið upp á ómskoðun á Kvennadeild Landspítalans. 6 - 8 vikum eftir fæðingu er boðið upp á eftirskoðun.

Heimilislæknir og ljósmóðir Heilsugæslustöðvarinnar fylgjast með konunni á meðgöngutímanum en haft er samráð við sérfræðinga í fæðingarhjálp ef þörf krefur. Ljósmóðir hefur fræðslufund með foreldrum og ræðir um meðgöngu og fæðingu. Einnig er farið í kynnisferð á fæðingardeild Landspítalans
Markmiðið er að stuðla að farsælli meðgöngu með faglegri umönnun, fræðslu og stuðningi.

Skipulögð foreldranámskeið fyrir verðandi foreldra fara fram á stöðinni í samráði við ljósmæður stöðvarinnar.

Sjá nánari upplýsingar um mæðravernd og einnig má finna fjölbreytt fræðsluefni um meðgöngu og fæðingu á fræðslusíðunni.


Heilsugæslustöð

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Hlíðar

Drápuhlíð 14-16, 105 Reykjavík
Sími: 585-2300, Fax: 585-2301
Netfang:
hlidar@heilsugaeslan.is

Almennur þjónustutími:

Virka daga kl. 8:00 - 17:00. Síðdegisvakt alla virka daga nema föstudaga kl. 16:00 - 18:00.

Sjá staðsetningu á korti


Strætó - Hlíðar

Leiðarnúmer Strætó:
Fara á www.bus.is

Hvað viltu gera? - Hlíðar



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;