Hægt er að fá samband við vakthafandi hjúkrunarfræðing í síma 510-0705 virka daga frá kl.13:00 til 17:00. Hjúkrunarfræðingurinn greinir erindi fólks, svarar fyrirspurnum, gefur ráðleggingar, eða vísar á á vaktina á stöðinni.
Smáslysaþjónusta er á stöðinni. Þar er slysa- og aðgerðastofa, þar sem auðvelt er að búa um og sauma sár og gera smáaðgerðir. Bráðatilvik hafa alltaf forgang.
Milli kl. 16:00 og 17:00 sinnir læknir bráða og slysaþjónustu á stöðinni. Hjúkrunarafræðingur er einnig á vakt á þessum tíma.
Vaktþjónusta er allan sólarhringinn. Eftir kl. 17:00 svarar vakthafandi læknir í síma 892-1263.
Ef vaktlæknir svarar ekki í símann, gæti hann verið upptekinn og er fólki bent á að hringja fljótlega aftur eða í 112 í neyðartilvikum.
Ef um alvarleg slys eða lífhættuleg bráð veikindi er að ræða, skal hafa samband við neyðarlínuna í síma 112.