Mikilvægt er fyrir alla að hafa örugga grunnbólusetningu gegn mænusótt, stífkrampa og barnaveiki. Endurtaka þarf þessar bólusetningar á 10 ára fresti ef hætta er á smiti.
Ræddu við heimilislækninn þinn um hvað þú þarft að gera til þess að vera ávallt sem best varinn gegn hættulegum sjúkdómum sem hægt er að bólusetja fyrir.