Samstarfsaðilar

Samstarfsaðilar

Landlæknir

Embætti landlæknis hefur eftirlit með starfi og starfsaðstöðu heilbrigðisstétta og starfsemi heilbrigðisstofnana auk þess að  gefa umsagnir um starfsleyfisumsóknir heil­brigðisstarfsfólks og -stofnana. Einnig sinnir embættið kvörtunum og kærum er varða samskipti almennings og heilbrigðisþjónustunnar. Vefslóð embættisins er www.landlaeknir.is

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið

Ráðuneytið hefur á hendi yfirstjórn, heildarstefnumótun og framkvæmd heilbrigðismála íslenska ríkisins. Undir ráðuneytið heyra málefni heilsugæslunnar. Vefslóð ráðuneytisins er www.heilbrigdisraduneyti.is

Landspítali háskólasjúkrahús

Heilsugæslan og LSH hafa gert með sér samstarfssamninga um ýmis mál, s.s. um læknisfræðilegar rannsóknir, starfsemi Miðstöðvar mæðraverndar og upplýsingatæknimál. Vefslóð spítalans er www.lsh.is

Háskóli Íslands.

Heilsugæslan og Háskóli Íslands hafa gert með sér samstarfssamning um um kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindagreinum. Heilsugæslan sér um klíníska kennslu lækna- og hjúkrunarfræðinema á heilsugæslustöðvum. Vefslóð Háskólans er www.hi.is

Reykjavíkurborg.

Heilsugæslan hefur tekið að sér læknisþjónustu á tveimur hjúkrunarheimilum Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, í Seljahlíð og á Droplaugar­stöðum. Þá sér Hjúkrunarheimilið Seljahlíð um heimahjúkrun í þjónustuíbúðum í nágrenni hjúkrunarheimilisins. Ennfremur starfa Reykjavíkurborg og Heilsugæslan saman að tilraunaverkefni um samþættingu heimaþjónustu og heimahjúkrunar. Vefslóð borgarinnar er www.reykjavik.is

Hjúkrunarheimilið Eir

Hjúkrunarheimilið sér um heimahjúkrun í þjónustuíbúðum í nágrenni hjúkrunarheimilisins í umboði Heilsugæslunnar. www.eir.is

Alþjóðahúsið.

Heilsugæslan og Alþjóðahúsið hafa gert með sér samstarfssamning varðandi þjónustu við innflytjendur. Vefslóð Alþjóðahússins er www.ahus.is

Læknavaktin

Læknavaktin sér, utan þjónustutíma heilsugæslustöðva, um móttöku- og vitjanaþjónustu lækna og ráðgjafaþjónustu henni tengda í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Garðabæ og Hafnarfirði. Þjónustan er veitt samkvæmt samningi við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Vefslóð Læknavaktarinnar er www.laeknavaktin.is


 


Heilsugæslustöðvar

Heilsugæslustöðvar


Miðlæg þjónusta

Miðlæg þjónusta


Tímabókanir

Tímabókanir

Þjónustustaðir

Sjá þjónustustaði á korti

Læknisþjónusta

Læknisþjónusta Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Mæðravernd

Mæðravernd

Ungbarnavernd

Ungbarnavernd

Skólaheilsugæsla

Skólaheilsugæsla

Heimahjúkrun

Heimahjúkrun


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir og framsetning


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi
;